21 Október 2021 16:21

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í suðurátt, að Menntavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 131 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sólskin og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.