13 Desember 2012 12:00

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í suðurátt, við leikskólann Öskju. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.