14 Maí 2013 12:00

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í suðurátt, við leikskólann Öskju. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 258 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.