11 Nóvember 2014 12:00

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í norðurátt, að Hringbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 141 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.