2 Mars 2015 13:40

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í norðurátt, að Hringbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 124 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi, en mikil hálka var á akbrautinni meðan á henni stóð, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.