4 Mars 2016 17:39

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í suðurátt, að Háskóla Reykjavíkur, skammt frá leikskólanum Öskju. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 358 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.