26 September 2016 12:38

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í norðurátt, að leikskólanum Öskju. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 199 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.