14 September 2017 08:32

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í suðurátt, að Menntavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.