8 Október 2012 12:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í norðurátt, við leikskólann Öskju. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 296 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.