20 September 2012 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Nesbala á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesbala í suðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 7 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45. Sökum lítillar umferðar á meðan hraðamælingunni stóð er rétt að taka niðurstöðunni m.t.t. þess.

Vöktun lögreglunnar á Nesbala er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.