4 September 2020 10:09

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, á móts við Melaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.