20 Október 2021 10:22

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, við Furumel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sólskin og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.