19 Janúar 2023 09:17

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, að Hjarðarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.