31 Ágúst 2012 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, við Melaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 119 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. Þess má geta að fjöldi skólabarna fór þarna um á meðan lögreglan var við hraðamælingar, en fyrrnefndur Melaskóla er við götuna. Við hraðamælingar á sama stað í febrúar var brotahlutfallið 38%, en síðan hefur verið bætt við hraðahindrun í götunni og ekki annað að sjá en það hafi skilað tilætluðum árangri.