1 Október 2008 12:00

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Neshaga í vesturbæ Reykjavíkur í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, við Melaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 128 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58. Á þessum stað á Neshaga eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga, en við hann er fyrrnefndur Melaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.