2 Júní 2009 12:00

Sautján voru staðnir að hraðakstri á Nesvegi á Seltjarnarnesi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 17 ökumanna mynduð á Nesvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Tjarnarstíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 154 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Nesvegi og þá óku 7% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var minni umferð um götuna (136 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 62 km/klst.