2 Nóvember 2021 11:35

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Nesvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í austurátt, á móts við Nesveg 53. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 166 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.