16 Nóvember 2021 09:01

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Nesvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í vesturátt, á móts við Suðurmýri 48. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.