23 Maí 2022 10:25

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í austurátt, á móts við Tjarnarmýri. Á einni klukkustund, um hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.