22 Október 2019 18:36

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Nesvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í austurátt, á móts við Nesveg 57. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.