5 Desember 2016 16:03

Brot 31 ökumanns var myndað á Njarðargötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í suðurátt, á móts við Íslenska erfðagreiningu . Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 187 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.