28 Október 2022 10:08

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í norðurátt, á móts við Íslenska erfðagreiningu . Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 243 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.