31 Maí 2012 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í norðurátt, að Sjafnargötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 88 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.