16 Nóvember 2012 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í norðurátt, við Sjafnargötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 85 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.