8 Nóvember 2013 12:00

Brot 31 ökumanns var myndað á Njarðargötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í suðurátt, á móts við Íslenska erfðagreiningu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 238 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83. 

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.