13 Júní 2014 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í norðurátt, við Íslenska erfðagreiningu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 206 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73. 

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.