10 Febrúar 2016 18:18

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í suðurátt, að Eggertsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 210 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.