31 Janúar 2023 13:23

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í vesturátt, að Fornuströnd. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.