4 Júlí 2018 15:09

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Víkurströnd. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.