19 Október 2020 16:02

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í suðurátt, við Fornuströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.