8 Maí 2009 12:00

Fimmtán voru staðnir að hraðakstri á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 15 ökumanna mynduð á Norðurströnd en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, að Barðaströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Norðurströnd og þá óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (127 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 72 km/klst.