19 Maí 2008 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, að Barðaströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.      

Eftirlit lögreglunnar á Norðurströnd er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Norðurströnd var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.