25 Nóvember 2015 12:20

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á móts við Nýbýlaveg 58. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 349 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en snjókoma var þegar vöktunin átti sér stað.