29 Júní 2016 22:49

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í austurátt, á móts við Nýbýlaveg 60. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.