4 Nóvember 2016 16:04

Brot 77 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á móts við Nýbýlaveg 58. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 366 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.