20 Júní 2019 15:49

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á móts við Nýbýlaveg 56. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 447 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.