21 Mars 2013 12:00

Brot 221 ökumanns var myndað á Nýbýlavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, vestan Skemmuvegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 457 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjörutíu og sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.