4 Mars 2013 12:00

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í austurátt, á milli Túnbrekku og Birkigrundar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 284 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.