11 Febrúar 2014 12:00

Brot 72 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á milli Túnbrekku og Birkigrundar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 456 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.