9 Mars 2015 19:52

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á móts við Nýbýlaveg 58. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 371 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.