21 Júlí 2015 15:47

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á móts við Nýbýlaveg 58. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 488 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.