6 Október 2010 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Öldugötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldugötu í austurátt, á milli Ölduslóðar og Öldutúns. Á einni klukkustund, síðdegis, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar á Öldugötu var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.