22 Júní 2022 09:42

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Rauðarárstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rauðarárstíg í norðurátt, að Njálsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 123 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar á Rauðarárstíg er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.