10 September 2015 17:04

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Rauðarárstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rauðarárstíg í norðurátt, við Njálsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 153 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Rauðarárstíg er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.