22 Júní 2022 09:38

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Réttarholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Réttarholtsveg í norðurátt, að Langagerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 65%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Réttarholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.