13 September 2022 13:28

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Réttarholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Réttarholtsveg í norðurátt, á móts við Réttarholtsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar á Réttarholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.