30 Ágúst 2017 15:41

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Réttarholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Réttarholtsveg í norðurátt, á móts við Réttarholtsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Réttarholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.