20 Október 2010 12:00

Brot 81 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Breiðholtsbrú. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.308 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 116.