16 Febrúar 2011 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, þ.e. í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110 en athygli vekur að brotahlutfallið í gær er mun lægra en lögreglan á að venjast á þessum stað, eða 14-19%.