3 Júní 2011 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, þ.e. í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Fimm óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 117.

Þess má geta að lögreglan hefur áður verið við hraðamælingar á þessum stað og þá hefur brotahlutfallið iðulega verið aðeins hærra, eða 14-19%.